REHABTrainer essentials

10. okt 2011

Námsskeiðin eru byggð þannig upp að kennsla er í 2 x 2 daga með eins dag hléi á milli þ.a frí er föstudaginn 9. Desember. Þann dag mun Ulrik nota til að vinna rannsóknarvinnu með aðilum frá KINE academy þar sem aðfeðir Ástralanna verða skoðaðar með EMG.

REHABtrainer námsskeiðsferlið var stofnað af fremstu íþróttasjúkraþjálfurum Ástralíu til að auka þekkingu sjúkraþjálfara og þjálfara á endurhæfingu einstaklinga með verki og veikleika í hreyfikerfi sínu. Hefur markmið þeirra verið að færa aðferðir úr enduhæfingu meira inn í æfingasal hins almenna borgara til að bæta árangur og minnka verki eða varna þeim. Er námsskeiðið því ætlað þjálfurum sem vilja standa upp úr í æfingasalnum varðandi kunnáttu og geti bæði sinnt sjúklingum og almenningi með fjölbreytt vandamál.

Hvað er REHAB trainer ? : Námsskeiðin eru kennd sem tvö námsskeiðsferli, fjórir dagar í senn. Hið fyrra heitir REHAB trainer Essentials og hið síðara REHAB trainer Masterclass. Eru námsskeiðin kennd víða í Eyjaálfu, Asíu, Dubai, Bretlandi og Bandaríkjunum, en þetta er fyrsta heimsókn þeirra til Norðurlandanna. Það er því einstakt tækifæri að fá þennan virta sjúkraþjálfara til Íslands og bendum við á að einungis verða 20 aðilar sem fá að taka þátt í námsskeiðinu sem er haldið í Vodafone höllinni að Hlíðarenda. Er það vilji REHAB trainer að hafa hópa þáttakenda minni til að námsskeiðin skili sem mestu til þáttakenda, enda er stór hluti verklegur í æfinga og tækjasal. Viljum við vekja athygli á að þetta er alþjóðlegt námsskeið og er það auglýst á heimasíðu þeirra þ.a skráning er ekki bundin við Íslendinga. Því hvetjum við áhugasama til að skrá sig sem fyrst á heimasíðu REHABtrainer : https://rehabtrainer.worldsecuresystems.com/BookingRetrieve.aspx?ID=157791

Með kveðju fh. KINE academy Stefán Ólafsson sjúkraþjálfari MTc.

Nánari upplýsingar : stefan@eflingehf.is s. 6927141

 

REHABTrainer essentials

Innskrá